Vegagerðin býður hér með út endurbyggingu á um 4,0 km kafla á Stykkishólmsvegi. Innifalið í endurbyggingunni er gerð fyllinga, útlögn styrktar- og burðarlags, tvöföld klæðing ásamt niðurlögn ræsa og víravegrið, grjótvörn og vinnsla efnis í burðar- og styrktarlög.
|
Fyllingar og fláafleygar
|
16.000 m³
|
|
Styrktarlag
|
11.680 m³
|
|
Burðarlag neðra lag
|
4.100 m³
|
|
Burðarlag neðra lag
|
2.555 m³
|
|
Þurrfræsing
|
32.000 m2
|
|
Tvöföld klæðing
|
28.292 m2
|
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. september 2026.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með þriðjudeginum 10. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. febrúar 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsupphæð.












