Home Fréttir Í fréttum 04.03.2026 RARIK. Óseyri 9 , Akureyri – Endurbætur og stækkun skrifstofu

04.03.2026 RARIK. Óseyri 9 , Akureyri – Endurbætur og stækkun skrifstofu

28
0
Mynd: Google Maps

RARIK ohf., kt. 520269-2669, óskar eftir tilboðum í útboðsverkið Óseyri 9 – Endurbætur og stækkun skrifstofu nr. 26015.

Í verkinu felast breytingar á núverandi skrifstofuhúsnæði á Óseyri 9 á Akureyri ásamt því að stækka húsnæðið. Um er að ræða tvæggja hæða byggingu þar sem burðarvirki er steypt. Húsið er einangrað að utan og klætt með timburklæðningu að hluta til og bárujárni að hluta. Húsið er einangrað að utan. Þakið er uppstólað timburþak á steyptri plötu.

Stærð hússins er 570 m² brúttó, mesta hæð 7,5 m frá kjallaragólfi. Viðbygging er 100 má tveimur hæðum og er hún við suðurenda skrifstofunnar á tveimur hæðum. Ásamt því að stækka núverandi hús felst verkið í alhliða endurbótum á núverandi skrifstofubyggingu.

Það á jafnt við innanhúss sem utan. Allir gluggar og hurðar verða endurnýjaðir ásamt því að endurnýja einangrun. Breytingar verða gerðar á innra skipulagi hússins þar sem núverandi inngangur verður fluttur á norðurhlið í stað austurhliðar.

Lóðarfrágangur er einnig innifalin í þessari framkvæmd. Bætt verður við fjölda bílastæða og undirstöðum fyrir rafmagnshleðslu komið fyrir.

Nánari lýsingu er að finna í útboðsgögnum.

Útboðsgögn afhent: 06.02.2026 kl. 17:00
Skilafrestur 04.03.2026 kl. 14:00
Opnun tilboða: 04.03.2026 kl. 14:00

Verkið skal hefjast 1. apríl 2026 og vera lokið eigi síðar en 1. september 2027.

Tilboðum skal skilað inn með rafrænum hætti á útboðsvef RARIK.

Spurningar og svör verða meðhöndluð í hinu rafræna útboðskerfi.

Sjá frekar.