Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 24.02.2026 Grundar­fjörður – Grjótvörn við Norður­garð 2026

24.02.2026 Grundar­fjörður – Grjótvörn við Norður­garð 2026

12
0
Mynd: Grundarfjarðarbær

Hafnarsjóður Grundarfjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í verkið „Grundarfjörður – Grjótvörn við Norðurgarð 2026“.

Helstu magntölur:

  • Uppúrtekt og endurröðun grjótvörn, um 3.500 m³ af grjóti og sprengdum kjarna.
  • Landfylling og yfirborðsfrágangur um 3.300 m3.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2026.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með föstudeginum 6. febrúar 2026.

Tilboði skal skila rafrænt í útboðskerfinu TendSign fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. febrúar 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.