Vegagerðin óskar eftir tilboðum í verkið „Suðurnesjabær, sjóvarnir 2026”
Gera skal nýjan 170 m sjóvarnargarð norðan við Jórukleif í Sandgerði. Við Norðurkotstjörn skal endurbæta um 70 m af eldri garði og gera nýjan um 80 m langan. Við Nesjar skal gera nýjan 325 m langan sjóvarnargarð í framhaldi af eldri garði.
Helstu magntölur:
- Lengd sjóvarna 645 m
- Flokkað grjót og sprengdur kjarni um 7.200 m3.
Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 1. júlí 2026, en sjóvörnunum við Nesjar og Norðurkotstjörn skal lokið fyrir 1. maí 2026.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með þriðjudeginum 3. febrúar 2026.
Tilboði skal skila rafrænt í útboðskerfinu TendSign fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. febrúar 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.












