Home Fréttir Í fréttum Tíu hæða hús rísi við Kringluna

Tíu hæða hús rísi við Kringluna

94
0
Mynd sem sýnir mögulegt útlit norðurbyggingar. Hér er horft til suðurs að nýjum inngangi Kringlunnar frá fyrirhugaðri borgarlínustöð. Tölvumyndir/Nordic arkitektar

Reitir fasteignafélag hf. hefur í bréfi til Reykjavíkurborgar óskað eftir að afstaða verði tekin til tillögu um nýtt skipulag og uppbyggingu á lóð norðan megin við Kringluna.

Í samvinnu við Nordic arkitekta hafi verið unnin staðháttagreining og tillaga að nýrri 10 hæða skrifstofubyggingu, samtals um 8.740 fermetrar.

Tillagan byggist á forsendum samgöngumiðaðrar þróunar og leggi áherslu á sterka tengingu við fyrirhugaða biðstöð borgarlínu við Miklabraut og aðgengi frá öllum samgöngumátum, gangandi, hjólandi, með almenningssamgöngum og bílum.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur tekur jákvætt í hugmyndir um að skerpa ásýnd verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar með viðbyggingu sem marki með skýrari hætti inngang fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur frá Miklubraut. Ljóst sé þó að vinna verður tillöguna frekar í samvinnu við skipulagsfulltrúa.

Heimild: Mbl.is