
Nýlega var sagt í Morgunblaðinu frá áformum um lengingu Sundabakka, sem hefur verið til kynningar í Skipulagsgáttinni.
Þar hefur einnig verið til kynningar fyrirhuguð dýpkun á Viðeyjarsundi. Hún er talin aðkallandi framkvæmd vegna þess að æ stærri skip, þ.e risastór skemmtiferðaskip, hafa komið í Sundahöfn hin seinni ár.
Mat Faxaflóahafna er að með tilliti til öryggismála sé þessi dýpkun nauðsynleg sem allra fyrst til að lágmarka áhættuna á slysum í höfninni vegna stórra skipa.
Heimild: Mbl.is











