
Þórshafnarbúar funduðu um framtíð grunnskólans í plássinu þegar mygla greindist þar í annað sinn fyrr á árinu. Flestum finnst að gera eigi við skólann frekar en að byggja nýjan.
Íbúafundur var á Þórshöfn í síðustu viku um grunnskólann þar sem mygla greindist í vor, í annað sinn síðan 2015. Sveitarstjórn hefur lagt til þrjá möguleika og íbúar ræddu kosti þeirra og galla.
Björn S. Lárusson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, sagði fundinn hafa verið góðan.
„Við stóðum frammi fyrir þessum vanda síðasta vetur, þetta hefur reyndar komið upp áður og magnaðist í vetur og við létum gera mjög ítarlegar rannsóknir og það kom í ljós að meira en þriðjungur af skólanum er mjög myglaður.“
Hann segir mikinn raka einnig hafa mælst í öðrum hlutum byggingarinnar. Það sé því ekki víst hvort forsvaranlegt sé að gera við núverandi húsnæði.
Upprunaleg bygging frá 1944
Björn segir þrjá kosti í stöðunni. Sá fyrsti, og jafnframt sá ódýrasti, er að gera við skólann í núverandi mynd. Björn segir sambærileg dæmi úr öðrum sveitarfélögum ekki hafa sýnt sérlega góða reynslu af slíku.
„Annar kostur er að byggja nýjan á sama stað og bæta þá við rýmum til þess að færa skólann upp til nútíma en hann er upprunalega byggður 1944.“
Lítið vitað um ástand á lögnum og öðru undir skólanum
Björn segir háværustu umræðuna hafa snúið að viðgerð á núverandi byggingu, sem komi lítið á óvart þar sem sá kostur sé ódýrastur. Verði hann fyrir valinu þurfi að kanna raunverulegt ástand byggingarinnar betur.
„Það þýðir að við þurfum að taka fleiri sýni, taka borðkjarna úr plötunni. Það mælist mikill raki þar sem við vitum ekki hvaðan kemur.“
Plata hússins liggi lægra en lóðin og lítið er vitað um ástand lagna eða sökkla, þar sem þeir séu sokknir undir plötuna. „Þetta kostar sitt en gæti sparað okkur líka.“
Heimild: Ruv.is











