Home Fréttir Í fréttum 600 milljóna krafa vegna hafnargarðsins

600 milljóna krafa vegna hafnargarðsins

106
0
Mynd: rúv
Minjastofnun ríkisins hefur borist krafa upp á 600 milljónir króna frá lögmanni Reykjavík Development vegna gamla hafnargarðsins. Hafnargarðurinn var við Austurbakka og var skyndifriðaður í fyrra að frumkvæði Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanni Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra. Sigrún Magnúsdóttir, þá settur forsætisráðherra, ákvað að friða hafnargarðinn en Sigmundur Davíð vék frá málinu en Reykjavíkurborg taldi hann vanhæfan til að taka ákvörðunina.

Fréttatíminn greinir frá þessu. Í fréttinni kemur fram að krafa Reykjavík Development sé tvíþætt. Annars vegar er farið fram á að greiddur verði útlagður kostnaður eigenda lóðar á reitnum við Tollhúsið við að færa hafnargarðinn og setja í geymslu í Örfirisey.

<>

Hins vegar er farið fram á viðræður um kostnað við að koma steinunum fyrir aftur til sýnis fyrir almenning. Lögmaður Reykjavík Development, Bjarki Þór Sveinsson, segir að kostnaður við það geti hlaupið á milljörðum króna.

Heimild: Ruv.is