Home Fréttir Í fréttum Dóms­mála­ráðu­neyt­ið flytur á Skúla­götu 4

Dóms­mála­ráðu­neyt­ið flytur á Skúla­götu 4

25
0
Dómsmálaráðuneytið verður í húsinu við Skúlagötu 4 frá og með næsta fimmtudegi. Þórgunnur Oddsdóttir

Dómsmálaráðuneytið tekur formlega við nýjum skrifstofum í Skúlagötu 4, Sjávarútvegshúsinu svonefnda, á fimmtudag. Starfsemin verður flutt þangað í dag og á morgun.

Á meðan verða skrifstofur ráðuneytisins í Borgartúni lokaðar en símsvörum með eðlilegu móti, að því er segir á vef Stjórnarráðsins. Unnið hefur verið lengi að breytingum og endurnýjun á Sjávarútvegshúsinu, sem á að hýsa fimm ráðuneyti.

Húsið var byggt 1961 samkvæmt teikningu Hall­dórs H. Jóns­son­ar arki­tekts fyrir fiskrannsóknir Háskóla Íslands. Ríkisútvarpið var á tveimur efstu hæðum hússins um árabil og einnig skrifstofur Sjávarútvegsráðuneytisins.

Heimild: Ruv.is