Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 22.07.2025 Yfir­lagn­ir á höfuð­borgar­svæð­inu 2025, malbik

22.07.2025 Yfir­lagn­ir á höfuð­borgar­svæð­inu 2025, malbik

21
0
Mynd: mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir með malbiki á höfuðborgarsvæðinu árið 2025.  Verkið felst í endurnýjun slitlags á völdum köflum á stofnæðakerfi Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu.

Yfirlagnir
28.250 m2
Fræsing
28.250 m2
Yfirborðsmerkingar (flákar)
140 m2
Yfirborðsmerkingar (merkingarlengd)
8.000 m

Verklok eru 30. september 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með miðvikudeginum 9. júlí 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júlí 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.