Hraðútboð
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í öryggisaðgerðir á um 6,5 km á 15 stöðum á Seyðisfjarðarvegi (93-02 og 93-03) og sjóvörn við Sunnuver á Seyðisfirði
Helstu magntölur öryggisaðgerða á Seyðisfjarðarvegi eru:
– Bergskeringar í vegstæði 940 m3
– Fyllingar og fláafleygar 17.000 m3
– Ræsalögn 87 m
– Endafrágangur ræsa 20 stk
– Grjóthleðslur 54 m3
– Frágangur fláa 50.000 m2
Helstu magntölur sjóvarnar á Seyðisfirði eru:
– Grafa rás fyrir sjóvörn og jafna fláa 190 m
– Útlögn flokks I 1030 m
– Útlögn flokks II 630 m3
– Útlögn kjarna flokkur III 400 m3
Verki við Seyðisfjarðarveg, öryggisaðgerðir, skal að fullu lokið fyrir 1. ágúst 2017 en verki við sjóvörn á Seyðisfirði skal að fullu lokið fyrir 15. nóvember 2016.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 13-15 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeginum 2. ágúst 2016. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. ágúst og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.