Framkvæmdir við 3. áfanga Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, hafa gengið vel í vor. Verkið hófst í september 2023 og er framkvæmdatími nú rúmlega hálfnaður. Stefnt er að verklokum í nóvember 2026.

Brú yfir Dimmu senn tilbúin
Hluti framkvæmdanna felst í nýrri göngu- og hjólabrú yfir Dimmu í Elliðaárdal. Uppsetningu brúarinnar er lokið en eftir er frágangur á vatnsþéttilagi, malbiki og handriði. Einnig er unnið að stígatengingum hvoru megin við brúna. Vonir standa til þess að hægt verði að taka brúna í notkun síðar í sumar.

Steypuvinna hafin við stöpla og brúardekk
Malbikun nýrrar akbrautar meðfram Breiðholtsbraut, austan Jaðarsels að Vatnsendahvarfi, er lokið og stendur frágangur nú yfir. Á sama svæði er unnið að undirslætti brúardekks fyrir akstursbrú yfir Breiðholtsbraut. Steypuvinna við endastöpla nýrrar göngubrúar yfir Arnarnesveg, til móts við Turnahvarf, er langt komin og nálgast verklok.

Fyllingar og hljóðmanir í vinnslu
Framkvæmdir við fyllingar undir Arnarnesveg og göngu- og hjólastíga, bæði við veginn sjálfan og í Elliðaárdal, eru einnig í gangi. Klappskeringar í vegstæðinu sunnan Breiðholtsbrautar standa yfir en þær eru hluti af undirbúningi fyrir nýtt vegstæði. Á sama tíma er unnið við frágang hljóðmana meðfram nýjum Arnarnesvegi og Breiðholtsbraut, sem munu draga verulega úr umferðarhávaða í nærliggjandi íbúðahverfum.

Breytingar á stofnlögnum
Að auki er unnið að breytingum á stofnlögnum fyrir heitt og kalt vatn þar sem ný undirgöng verða undir Arnarnesvegi við Rjúpnaveg. Tengingar frárennslislagna eru einnig í vinnslu. Þá er hafin framleiðsla á forsteyptum einingum sem notaðar verða við byggingu undirganganna.
Unnið er að frágangi á dælubrunni og stígatengingum við nýju undirgöngin undir Breiðholtsbraut á móts við Völvufell.

Jarðefni nýtast í Vetrargarðinn
Við framkvæmdirnar hefur fallið til talsvert magn jarðefna sem nýtist ekki á verkstað. Þessi jarðefni hafa verið flutt í Vetrargarð Reykjavíkurborgar við Jafnaðarsel, þar sem unnið er að uppbyggingu útivistarsvæðis í brekkunni þar sem áður var skíðasvæði. Sáningu er að ljúka á meginhluta svæðisins og það tekið að grænka að nýju.

Um framkvæmdina:
Markmið framkvæmdanna er að bæta tengingar við efri byggðir Kópavogs og létta á umferð um aðliggjandi hverfi og stofnvegi og skapa betri skilyrði fyrir fjölbreyttari ferðamáta, þar með talið gangandi og hjólandi vegfarendur.

Verkið er hluti af Samgöngusáttmálanum og er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna, Veitna og Mílu. Verktakar eru Suðurverk hf. og Loftorka Reykjavík ehf.

Allar helstu upplýsingar um stöðu framkvæmda Samgöngusáttmálans má finna í upplýsingagáttinni Verksja.is
Heimild: Vegagerðin