Home Fréttir Í fréttum Fimm nýjar leiguíbúðir við Loðmundartanga á Flúðum

Fimm nýjar leiguíbúðir við Loðmundartanga á Flúðum

13
0
F.v.: Jón Bjarnason oddviti Sveitastjórnar, Þorbjörn Guðmundsson Samiðn, Aldís Hafsteinsdóttir sveitastjóri, Daði Geir Samúelsson Sveitarstjórn, Þröstur Bjarnason sviðsstjóri á framkvæmdasviði Bjargs, Gunnar Haraldsson framkvæmdastjóri Probygg ehf.

Fyrsta skóflustunga var tekin að fimm leiguíbúðum Bjargs við Loðmundartanga á Flúðum þann 18. júní síðastliðinn. Áætlað er að íbúðirnar verði tilbúnar í apríl 2026. Opnað verður fyrir umsóknir nú í júlí, sjá frekari upplýsingar um úthlutun hér.

Íbúðirnar eru 93,4 – 95,6 m² og má þar finna anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og alrými með eldhúsi. Gæludýrahald er heimilt í íbúðunum, sjá nánar reglur Bjargs um gæludýrahald hér.

Verktaki: Probygg ehf.

Sjá nánar um íbúðirnar hér.

Heimild: Bjargibudafelag.is