Home Fréttir Í fréttum Allt að 1.000 synjað um verknám á hverju ári

Allt að 1.000 synjað um verknám á hverju ári

24
0
Samtök iðnaðarins telja alvarlegan skort vera á iðnmenntuðu starfsfólki á Íslandi. Ljósmynd/Colourbox

Meist­ara­deild Sam­taka iðnaðar­ins segja að um 600 til 1.000 nem­end­um sé synjað um skóla­vist í iðn- og tækni­námi á ári hverju. Ástæðuna telja þeir vera skort á aðstöðu, þ.e. fjár­magni og hús­næði. Sam­tök­in kalla eft­ir því að fram­kvæmd­um við verk­náms­skóla verði flýtt.

Þetta kem­ur fram í álykt­un frá MSI. Þar segj­ast sam­tök­in fagna áherslu rík­is­stjórn­ar­inn­ar um efl­ingu verk­náms með upp­bygg­ingu í fram­halds­skól­um og fleiru. Þau telja þörf­ina þó brýna og að bet­ur megi gera, ef duga skuli, því skort­ur­inn sé orðinn al­var­leg­ur.

MSI seg­ir að í könn­un meðal aðild­ar­fyr­ir­tækja Sam­taka iðnaðar­ins hafi 48% starfs­fólks og 56% stjórn­enda þeirra talið að „al­var­leg­ur skort­ur á iðnmenntuðu starfs­fólki,“ sé til staðar.

Þarf 800 raf­virkja á næstu 5 árum

Fyr­ir­tæki í rafiðnaði telja til dæm­is að ráða verði um 800 raf­virkja á næstu fimm árum. 67% stjórn­enda fyr­ir­tækja í iðnaðinum segja erfiðleika við að fá fólk í þau störf hafa hamlað vexti fyr­ir­tækj­anna.

Þá seg­ir MSI einnig að hlut­fall ung­menna á Íslandi sem velja iðnnám sé lægra en geng­ur og ger­ist í öðrum OECD-ríkj­um. Því vilji þau breyta með mark­viss­um aðgerðum.

Heimild: Mbl.is