Home Fréttir Í fréttum Öku­maðurinn slapp naum­lega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð

Öku­maðurinn slapp naum­lega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð

31
0
Bíllinn varð fljótt alelda og eðlilega miðað við farminn. Slökkvilið Fjarðabyggðar

Bíllinn sem logaði við munna Norðfjarðargöngunum var hlaðinn þrjú þúsund lítrum af málningu og þrjú þúsund lítrum af olíu. Hann varð því alelda á mjög skömmum tíma en ökumaður komst út af sjálfsdáðum og slapp ómeiddur.

Loka þurfti tímabundið fyrir umferð og Norðfjarðargöngin eftir að kviknaði í vegmerkingabíl verktaka á vegum Vegagerðarinnar. Útkallið barst klukkan korter í fjögur í dag en þá var bíllinn í um 1-2 kílómetra fjarlægð frá göngunum við Norðfjarðará í Norðfirði.

Fram kemur í færslu frá slökkviliði Fjarðabyggðar að boðað hafi verið út frá tveimur stöðvum og að slökkvistörf hafi gengið greiðlega. Notast var við mónitór á tveimur slökkvibílum með 1/7 froðu og í kjölfarið var vatn notað til kælingar á olíutönkum.

Af slökkvistarfinu.
Slökkvilið Fjarðabyggðar

Norðfjarðargöngum var lokað Eskifjarðarmegin á meðan öryggi á vettvangi var tryggt en að slökkvistarfi loknu var farið í að tæma þá olíutanka sem farið höfðu að leka og sinnir slökkviliðið nú vöktun á vettvangi þar til unnt verður að fjarlægja bílinn síðar í kvöld.

„Atvikið átti sér stað utan vatnsverndarsvæðis, en einnig þykir mikil mildi að bifreiðin hafi ekki verið komin inn í göngin þegar eldurinn kviknaði, þar sem það hefði gert slökkvistörf mun flóknari og krefjandi,“ segir í færslunni.

Slökkvilið Fjarðabyggðar birti myndirnar hér að neðan af slökkvistarfinu.

Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins.
Slökkvilið Fjarðabyggðar
Vatn var notað til að kæla tankinn eftir að froðan hafði sinnt sínu hlutverki.
Slökkvilið Fjarðabyggðar
Bíllinn varð alelda mjög fljótt og ekki annars að vænta miðað við lestina.
Slökkvilið Fjarðabyggðar
Boðað var úr tveimur stöðvum.
Slökkvilið Fjarðabyggðar

Heimild: Visir.is