Home Fréttir Í fréttum Úrgangur úr rotþróm græðir upp land en blautþurrkur þvælast fyrir

Úrgangur úr rotþróm græðir upp land en blautþurrkur þvælast fyrir

19
0
Rotþró tæmd og seyran notuð í áburð Flúðir – Seyrustaðir

Úrgangur úr rotþróm fær nýjan tilgang á seyrustöðinni á Flúðum. Þar er frjósamur áburður unninn úr saurnum og dreift um bersvæði til uppgræðslu. Sveitarfélagið Árborg hefur nú bæst í hóp þeirra sveitarfélaga sem taka þátt í seyruverkefninu.

Á Flúðum er starfrækt seyrustöð þar sem úrgangi úr rotþróm er breytt í frjósaman áburð til landuppgræðslu. Verkefnið gengur vonum framar að sögn skrifstofustjóra Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita. Hvert sveitarfélagið á fætur öðru bætast í hóp þeirra sem taka þátt í verkefninu og það nýjasta er Árborg.

Sveitarfélögin Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur hafa staðið að seyruverkefninu í samstarfi við Landgræðsluna og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands síðan vorið 2012.

Seyran notuð til uppgræðslu

Sveitarfélögin annast hreinsun rotþróa á sínum svæðum á 3 ára fresti, safna seyrunni í sérútbúinn bíl sem sturtar henni svo í kalkara þar sem kalki og grasfræjum er blandað saman við. Að því loknu er seyran flutt á sérstakt dreifingarsvæði í Hrunamannaafrétt þar sem hún er notuð til uppgræðslu.

Hvernig hefur áburðurinn reynst?

„Hann hefur verið að koma mjög vel út,“ segir Nanna Jónsdóttir, skrifstofustjóri Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita. Jafnframt sé samtal í gangi við Bláskógabyggð og heilbrigðiseftirlitið um fjölgun á svæðum sem nýta sér seyru til landgræðslu. Í nágrannalöndunum nýti bændur sér jafnvel seyruna til uppgræðslu á sínum jarðskikum.

Blautþurkur ein helsta áskorunin

„Það er ákveðin áskorun og kannski helsta áskorunin við þetta verkefni hvað fólk hendir því miður miklu rusli í salernið, blautþurkum og öðru sem ekki á þar heima. Núna erum við að taka við um 1000 tonnum á ári og erum einmitt að endurnýja búnað hjá okkur og stækka kalkarann til þess að geta tekið á móti enn þá meiru,“ segir Nanna.

En fyrir forvitnissakir, hvernig er lyktin af þessum áburði?

„Þetta er náttúrlega seyra en hún er búin að liggja í þróm og hefur brotnað niður og þá er lyktin ekki eins sterk,“ segir Nanna að lokum.

Heimild: Ruv.is