Home Fréttir Í fréttum Sækja fram á húseiningamarkaðinum

Sækja fram á húseiningamarkaðinum

18
0
Rúnar Höskuldsson framkvæmdastjóri sölusviðs og Börkur Grímsson forstjóri á nýju athafnasvæði Stólpa. Morgunblaðið/Eggert

Fyr­ir­tækið Stólpi, sem áður hét Stólpi Gám­ar og er í dag dótt­ur­fé­lag Styr­káss, hyggst sækja fram á markaði fyr­ir hús­ein­ing­ar. Fyr­ir­tækið á í sam­starfi við ein­inga­verk­smiðju í Tékklandi.

Stólpi býður upp á heild­ar­lausn­ir fyr­ir at­vinnu­lífið á sviði gáma- og hús­ein­inga­lausna auk þess að sinna viðhalds- og viðgerðaþjón­ustu.

Börk­ur Gríms­son for­stjóri Stólpa og Rún­ar Hösk­ulds­son fram­kvæmda­stjóri sölu­sviðs segj­ast í sam­tali við Morg­un­blaðið vera mjög spennt­ir fyr­ir fram­hald­inu. Þeir segja að hús­ein­inga­lausn­ir Stólpa stand­ist ýtr­ustu ís­lensk­ar kröf­ur, bæði út­lits­lega og bygg­ing­ar­lega. Sam­starfsaðilar hér á landi eru verk­fræðistof­an Efla og arki­tekta­stof­an Batte­ríið. „Hús­ein­inga­hlut­inn er ný stoð í okk­ar rekstri, sem kem­ur mjög sterk inn,“ út­skýr­ir Börk­ur.

Heimild: Mbl.is