Home Fréttir Í fréttum Gæða gervigras á nýja völlinn á Hellu

Gæða gervigras á nýja völlinn á Hellu

16
0
Nýja vallarstæðið er norðaustan við gamla íþróttavöllinn á Hellu. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Rangárþing ytra hefur samið við fyrirtækið Laiderz um kaup á gervigrasi fyrir nýja knattspyrnuvöllinn á Hellu.

Um er að ræða 40–50 mm FIFA-vottað gervigras með fjaðurlagi, sama tegund og verið var að leggja á Hásteinsvöll í Vestmannaeyjum. Tilboðið frá Laiderz hljóðar upp á 87,4 milljónir króna og rúmast innan kostnaðaráætlunar verksins.

Tilboðið felur í sér fullnaðarfrágang á gervigrasinu, viðhaldsbúnað, mörk, hornfána, festingar ásamt merkingum og prófunum samkvæmt FIFA Quality staðli.

Stefnt er að því að fyrsti leikurinn á nýju gervigrasi verði leikinn á Töðugjöldum í ágúst næstkomandi.

Heimild: Sunnlenska.is