Home Fréttir Í fréttum Skóflustunga tekin að 68 leiguíbúðum við Haukahlíð 18 í Reykjavík

Skóflustunga tekin að 68 leiguíbúðum við Haukahlíð 18 í Reykjavík

32
0
Frá vinstri: Gylfi Gíslason framkvæmdastj. Jáverks, Björn Traustason framkvæmdastj. Bjargs, Magnús M. Guðmundsson framkvæmdastj. BSRB, Heiða B. Hilmisdóttir borgarstjóri, Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ, Guðrún Kristinsdóttir, starfsmaður Bjargs

Áætlað er að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar í júlí 2027, en íbúðirnar verða afhentar á þremur mismunandi dagsetningum.

Íbúðirnar eru í 85 íbúða fjölbýlishúsi á 3-5 hæðum með þremur stigahúsum og verða íbúðirnar tveggja til sex herbergja. Bílakjallari verður í húsinu ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Gæludýrahald verður leyft í hluta íbúðanna á jarðhæð.

Sjá nánar hér um reglur Bjargs um gæludýrahald.

Teikning af fjölbýlsihúsum við Haukahlíð 18

Opnað verður fyrir umsóknir í september á næsta ári. Sjá frekari upplýsingar um úthlutun hér.

Verktaki: Jáverk ehf.

Sjá nánar um íbúðirnar hér.

Heimild: Reykjavikurborg