Home Fréttir Í fréttum Mygla fannst í Árnasafni í Kaupmannahöfn

Mygla fannst í Árnasafni í Kaupmannahöfn

20
0
Stofnun Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn geymir tæp 1.500 handrit úr safni handritasafnarans. mbl.is/Hari

Árna­safni í Kaup­manna­höfn, syst­ur­stofn­un Stofn­un­ar Árna Magnús­son­ar á Íslandi, hef­ur verið lokað tíma­bundið eft­ir að mygla fannst í þrem­ur bygg­ing­um Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla. Tæp­ur helm­ing­ur hand­rita­safns Árna Magnús­son­ar hef­ur aðset­ur inn­an bygg­ing­ar­inn­ar.

Hand­rit­in hólp­in frá mygl­unni

Í svari Anne Mette Han­sen, yf­ir­manns Árna­safns í Kaup­manna­höfn, við fyr­ir­spurn mbl.is seg­ir að hið eig­in­lega skjala­safn Árna Magnús­son­ar hafi þó ekki orðið fyr­ir barðinu á mygl­unni.

Ástæðan sé sú að hand­rit­in séu ekki geymd í þeirri bygg­ingu þar sem mygl­an hafi komið upp, held­ur í hvelf­ingu sem sé í raun bygg­ing út af fyr­ir sig, inn­byggð í hús Árna­safns.

Hand­rit­in verða und­ir auknu eft­ir­liti. mbl.is/​Krist­inn Ingvars­son

Auk­in ör­ygg­is­gæsla

Í skjala­safni Árna­safns í Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla eru nú rétt tæp­lega 1.500 hand­rit úr safni Árna Magnús­son­ar, til dæm­is hand­rit að Njáls sögu og Guðmund­ar sögu bisk­ups góða.

Af ör­ygg­is­ástæðum er fylgst sér­stak­lega vel með hand­rit­un­um.

Heimild: Mbl.is