Búið er að opna Sæbraut að nýju, milli Súðavogs og Kleppsmýrarvegar, en lokað var þar fyrir umferð frá klukkan tíu í gærkvöld á meðan ný göngu- og hjólabrú var hífð þar upp í nótt.
Stefnt var að því að ljúka framkvæmdum fyrir klukkan sex í morgun og gekk það eftir.
Þá eru komnar slár beggja vegna sem sýna nýjar hæðartakmarkanir fyrir nýju brúna, en hún tengir hina nýju Vogabyggð við Vogahverfi og er ætlað að bæta umferðaröryggi þeirra á milli, ekki síst fyrir skólabörn.
Heimild: Ruv.is