
Guðni Á. Haraldsson hrl. segir eftirliti byggingarfulltrúa sveitarfélaga með nýbyggingum vera mjög ábótavant. Á því þurfi að ráða bót enda geti slælegt eftirlit haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Guðni var lögmaður í máli sem sagt var frá í Morgunblaðinu í vikunni. Nánar tiltekið var sagt frá dómsmáli vegna ágalla á fjölbýlishúsinu við Löngulínu 2-6 í Sjálandshverfinu í Garðabæ. En í því máli (nr. 798/2017) dæmdi Hæstiréttur Arion banka til að greiða húsfélaginu um 300 milljónir í bætur en rífa þurfti alla klæðningu af blokkinni og klæða upp á nýtt fyrir um 460 milljónir króna.
Heimild: Mbl.is