
Á austurbakka Ölfusár, ofan við Selfoss, hefur nú verið komið upp varnargarði á þeim stað þar sem ný brú yfir ána verður. Þetta er við Efri-Laugardælaeyju, þar sem reistur verður 60 metra hár turn en sá verður eins konar hryggjarstykki í brúnni nýju.
Jarðvegsrannsóknum á brúarstæðinu er nú lokið og stefnt er að því að framkvæmdir við undirstöður mannvirkisins hefjist innan tíðar. Á varnargarðinum, sem myndin hér að ofan sýnir vel, verður sett 40 metra löng brú út í eyjuna. Að því fengnu komast framkvæmdirnar á fullt skrið.
Unnið er um þessar myndir að jarðvegsskiptum í austan árinnar, sunnan við bæinn Laugardæli. Þar verður tenging við brúna nýju en öll þessi mannvirki verða hluti af Hringvegi 1. Framkvæmdum á að ljúka árið 2028.
Heimild: Mbl.is