F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Gylfaflöt – Bæjarflöt. Gatnagerð og lagnir, útboð nr. 13764
Verkið felst m.a. í því að grafa og fylla í götustæði og gangstéttar. Jarðvinna vegna veitulagna, lagning fráveitu- og kaldavatnslagnir í götu, leggja hitaveitulagnir, raflagnir, götuljósastreng, og fjölpípurör í gangstéttar, leggja ídráttarrör og reisa ljósastólpa.
Helstu magntölur eru:
• Gröftur 5.300 m3
• Fylling 5.300 m3
• Fráveitulagnir 340 m
• Vatnsveitulagnir 220 m
• Hitaveitulagnir 200 m
• Raflagnir 500 m
• Götulýsing 380 m
• Ljósastólpar 12 stk
• Fjarskiptalagnir 1.600 m
• Gröftur 5.300 m3
• Fylling 5.300 m3
• Fráveitulagnir 340 m
• Vatnsveitulagnir 220 m
• Hitaveitulagnir 200 m
• Raflagnir 500 m
• Götulýsing 380 m
• Ljósastólpar 12 stk
• Fjarskiptalagnir 1.600 m
Lokaskiladagur verksins er 1. nóvember 2016.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á 3.000 kr. frá og með þriðjudeginum 12. júlí 2016 í afgreiðslu þjónustuvers Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12 – 14, 105 Reykjavík.
Opnun tilboða: Þriðjudaginn 26. júlí 2016 kl. 10:00 í Borgartúni 12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver Reykjavíkurborgar.