Home Fréttir Í fréttum Hús á leið til Húsavíkur

Hús á leið til Húsavíkur

21
0
Bílaflotinn mjakast niður Hörgárbrautina í gærmorgun Mynd: Vbl.

Það má með sanni segja að nokkuð óvenjulegur framur hafi átt leið um Akureyri gærmorgun, þegar 12 veglegar flutningabifreiðar óku sem leið lá gegnum bæinn með húseiningar sem eru á leið til Húsavíkur.

Það Bjarg íbúðafélag, sem er óhagnaðardrifið íbúðafélag, sem mun byggja sex íbúða raðhús að Lyngholti 42-52 á Húsavík í samstarfi við Norðurþing.

Mynd: Vbl

Einingarnar eru smíðaðar á Selfossi og má þvi segja að ferðalagið sé nokkuð langt en allt hefur gengið eins og í sögu og kæmi ekki á óvart ef ferðalaginu lyki um eða upp úr hádegi í dag.

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar bílaflotinn fór um Akureyri nú í gær.

Mynd: Vbl

Heimild: Vikubladid.is