Landakotskirkja fær hæsta styrkinn í úthlutun Minjastofnunar Íslands úr húsafriðunarsjóði á þessu ári eða níu milljónir króna. Næsthæsta kirkjustyrkinn hlýtur Álftaneskirkja á Mýrum fimm milljónir. 51 milljón króna fer til friðlýstra húsa og mannvirkja.
Hæstu styrkina í þeim flokki, eða fjórar milljónir, fá Duus-hús í Keflavík, Norræna húsið og Verkamannabústaðirnir við Hringbraut. 103 milljónir verða veittar til friðaðra húsa og mannvirkja.
Hús Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga og Miðstræti 10 í Reykjavík fá þar mest, fjórar milljónir. Hæsti styrkur til húsakannana fer til rannsóknar á Íslenskum sundlaugabyggingum frá fyrri hluta 20. aldar.
Heimild: Ruv.is