Home Fréttir Í fréttum Lagnateikningar og séruppdrættir byggingarfulltrúa í Reykjavík nú aðgengilegar stafrænt

Lagnateikningar og séruppdrættir byggingarfulltrúa í Reykjavík nú aðgengilegar stafrænt

18
0
Starfsfólk borgarinnar við stafla af teikningum. Mynd: Reykjavikurborg

Átaksverkefni við skönnun og birtingu séruppdrátta byggingarfulltrúans í
Reykjavík er nú lokið. Verkefnið fól í sér að gera raflagna-, burðarþols- og
lagnateikningar, ásamt öðrum séruppdráttum sem voru á pappír, aðgengileg
á vefnum fyrir almenning og fagaðila.

Með verkefninu hefur verið tryggt að mikilvægar upplýsingar séu nú
aðgengilegar á rafrænan hátt í gegnum borgarvefsjá en áður var einungis hægt
að nálgast séruppdrætti í þjónustuveri Reykjavíkurborgar og
Borgarskjalasafni.

Alls voru um 700.000 teikningar skannaðar og skráðar.
Unnið var markvisst að því að bæta skráningu með áherslu á nákvæmni, sem og
að leysa tæknileg vandamál tengd gagnagrunnum.

Áhrif verkefnisins
Með vinnunni hefur Reykjavíkurborg stigið stórt skref í stafrænni þróun og
bættri þjónustu.

Almenningur og fagaðilar njóta betri þjónustu með aðgangi að gögnum allan
sólarhringinn. Þá stuðlar aukið gagnsæi og betra aðgengi að hagkvæmari
vinnslu mála ásamt því að spara tíma og fjármagn.

Hægt er að skoða séruppdrætti á www.borgarvefsja.is og velja
teikningar. Borgarvefsjá er tengd teikningavef sem býður upp á fleiri
leitarmöguleika í öllu teikningasafni Reykjavíkurborgar.

Hægt er að hafa samband í tölvupósti á netfangið upplysingar@reykjavik.is ef
einhverjar spurningar vakna eða í síma 411-1111.

Heimild: Reykjavikurborg