Áætluð heildarfjárhæð í fyrirhuguðum verklegum útboðum þeirra tíu opinberu verkkaupa sem taka þátt í Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins (SI), Samtaka innviðaverktaka og Mannvirkis – félags verktaka 2025 nemur 264,2 milljörðum króna. Þetta er nær tvöföldun frá þeim útboðum sem raungerðust árið 2024 en þau námu 134,5 milljörðum króna. Þetta kom fram á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins sem haldið var í dag.
Þrír verkkaupar af tíu boða 90% aukningarinnar, þ.e. Landsvirkjun, Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) og Nýr Landspítali (NLSH). Umfangsmest eru fyrirhuguð útboð Landsvirkjunar sem eru áætluð 92 milljarðar króna fyrir árið 2025. Það nemur ríflega 35% af öllum fyrirhuguðum útboðum opinberra aðila sem taka þátt í Útboðsþingi SI í ár.
Aðrir sem boða umfangsmikil útboð á árinu eru FSRE með 50,2 milljarða króna og NLSH með 42,5 milljarða króna. Samanlagt eru þessir þrír aðilar með boðuð verkútboð fyrir 184,7 milljarða króna á árinu eða um 70% af fyrirhuguðum útboðum 2025. Aðrir þátttakendur þingsins fyrirhuga að bjóða út verk fyrir minna en 20 milljarða króna hver á árinu.
Heimild: Mbl.is