Home Fréttir Í fréttum Tilbúnum íbúðum fjölgaði um 515% á fimm árum

Tilbúnum íbúðum fjölgaði um 515% á fimm árum

23
0
Hamraneshverfi um umliðna helgi. Myndir/Guðmundur Fylkisson

Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum íbúðum í Hafnarfirði hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu ár og fjölgaði um 515% í fyrra miðað við árið 2020.

<>

Yfir 500 nýjar íbúðir í Hafnarfirði í fyrra

Alls voru 524 íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra, ríflega 515% fleiri en á árinu 2020. Samkvæmt tölum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar voru nýju fullbúnu íbúðirnar 524 í fyrra, 407 árið 2023 og 110 árið 2022.

Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir mikla vinna hafa verið lagða í að hraða íbúðauppbyggingu, allt frá árinu 2018.  „Við sjáum afrakstur mikillar vinnu síðustu ára þessa dagana og ég mun áfram leggja áherslu á að hér séu byggðar íbúðir fyrir alla hópa samfélagsins líkt og verið hefur,“ segir hann.

  • 2024 = 524 íbúðir
  • 2023 = 407 íbúðir
  • 2022 = 110 íbúðir
  • 2021 = 137 íbúðir
  • 2020 = 85 íbúðir
  • Heimild: Tölur frá HMS

Húsnæðis og mannvirkjastofnun hélt í vikunni opinn fund um stöðuna á íbúðamarkaðinum. Þar kom fram að fullbúnum íbúðum fjölgaði hlutfallslega mest í Hafnarfjarðarkaupstað, eða um 4,8 prósent, þar sem 524 íbúðir urðu fullbúnar á síðasta ári.

Alls eru 4824 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu, þar ef eru 1219 íbúðir í Hafnarfirði, samkvæmt mælaborði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Stofnunin metur íbúðaþörfina rúmlega 13.600 næstu fimm árin, þar af tæplega 8390 á höfuðborgarsvæðinu.

„Hafnarfjörður hefur byggt mikið á síðustu tveimur til þremur árum í nýja hverfinu sínu,“ sagði Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur á húsnæðissviði HMS í fréttum RÚV á þriðjudagskvöld.

Helst hefur verið byggt á þróunarreitum hér í Hafnarfirði og á lóðum sem hafa hentað með tilliti til hlutdeildalána. Hér hafa risið hefðbundnar íbúðir sem henta markaðnum vel.

Hamraneshverfi um umliðna helgi. Myndir/Guðmundur Fylkisson

Vilja fjölga byggingarsvæðum

Nú er horft til að fjölga byggingasvæðum innan Hafnarfjarðar til að halda sama uppbyggingarhraða. Byggja á samtals um 1850 íbúðir í Hamranesi. Hluti þeirra er nú þegar kominn í notkun.

„Við höfum staðið okkur vel hér í Hafnarfirði líkt og tölurnar sýna,“ segir hann en ljóst sé að byggja þurfi meira um land allt. „Við þurfum að halda áfram að þétta byggð með skynsamlegum hætti á sama tíma og við byggjum á nýju landi. Þetta tvennt þarf að hanga saman og er eina leiðin til að leysa þá stöðu sem nú er uppi. Við skulum kalla þetta hafnfirsku leiðina “ segir Valdimar léttur.

Heimild: Hafnarfjordur.is