Home Fréttir Í fréttum Norsku skipagöngin á leið í út­boðs­ferli

Norsku skipagöngin á leið í út­boðs­ferli

17
0
Skipagöngin yrðu þau fyrstu í heiminum. Framkvæmdir eiga að hefjast eftir rúmt ár. Kystverket

Siglingastofnun Noregs, Kystverket, hefur tilkynnt að formlegt útboðsferli skipaganganna við Stað hefjist 1. desember næstkomandi. Áformað er að framkvæmdir hefjist eftir rúmt ár og að skipagöngin verði tilbúin í árslok 2030.

<>

Verkið verður í alútboði og byrjað á því að auglýsa forval. Áhugasömum verktökum býðst að mæta á ráðstefnu um útboðið á Gardermoen við Osló þann 17. desember. Þar verður verkefnið kynnt ítarlega.

Þótt útboðið verði auglýst er gerð skipaganganna ekki í höfn. Norska Stórþingið setti það skilyrði að skipagöngin mættu ekki kosta meira en 5.060 milljarða norskra króna, andvirði 63 milljarða íslenskra króna. Tilboð sem berast þurfa að vera vel innan þess kostnaðarramma til að norska ríkisstjórnin gefi grænt ljós. Annars þarf að leggja málið aftur fyrir Stórþingið.

Skipagöngin, sem yrðu þau fyrstu í heiminum, eru umdeild í Noregi. Af þeim sökum hafa þarlend stjórnvöld ítrekað frestað ákvörðun og sífellt beðið um nýjar úttektir og skýrslur. Margir telja framkvæmdina glórulausa sóun fjármuna og gagnrýna forgangsröðunina en hæpið þykir að siglingatollur muni standa undir kostnaði.

Göngin verða 1,7 kílómetra löng, 37 metra breið og 50 metra há.
Kystverket

Helstu rökin með göngunum eru þau að auka öryggi sjófarenda um röstina og veðravítið við Stað, sem þykir einhver hættulegasta siglingaleið heims. Göngin njóta stuðnings sjávarútvegs og fiskeldis í Noregi sem og sveitarfélaga á nærsvæðinu. Ráðamenn þeirra sjá einnig þann kost að skipagöngin verði aðdráttarafl ferðamanna.

Göngin verða 1,7 kílómetra löng, 50 metra há og 36 metra breið. Stærð þeirra miðast við að farþegaferjur Kystruten og Hurtigruten geti siglt með öryggi um göngin.

Fyrstu skipin sigla í gegn eftir sex ár, gangi áætlanir eftir.
Kystverket/Multiconsult/Link Arkitektur

Samkvæmt tímaáætlun Kystverket hafa áhugasamir verktakar frest til 31. janúar til að gefa sig fram. Í marsmánuði verða þrír til fimm valdir til þátttöku í útboðinu. Þeir eiga síðan að skila inn fyrsta tilboði fyrir 1. júní og lokatilboði í október 2025.

Ef allt gengur upp verður tilkynnt um val verktaka í nóvember og samningar þá undirritaðir. Verkið á að hefjast snemma árs 2026 og er framkvæmdatími áætlaður tæp fimm ár.

Heimild: Visir.is