Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð Dettifossvegar (862-02), frá gatnamótum Dettifossvegar vestri að Hólmatungum.
Verkið felst í að byggja upp veginn að efra burðarlagi. Lengd útboðskaflans er 7,72 km.
Helstu magntölur eru:
- Bergskeringar 4.280 m3
- Aðrar skeringar 167.970 m3
- Skeringar vegna svarðlags 38.290 m3
- Fyllingar 143.300 m3
- Fláafleygar 41.130 m3
- Ræsalögn 420 m
- Endafrágangur ræsa 22 stk
- Neðra burðarlag (styrktarlag) 5.140 m3
- Frágangur fláa 22.850 m2
- Frágangur hliðarsvæða 20.920 m2
Verklok eru 15. ágúst 2017.
Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni, Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri og í móttöku Vegagerðarinnar, Borgartúni 7, 105 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 17. maí 2016.
Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. maí 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.