Home Fréttir Í fréttum Fram­kvæmdir hafnar við Búr­fells­lund

Fram­kvæmdir hafnar við Búr­fells­lund

33
0
Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á verkstað við Vaðöldu í vikunni. Landsvirkjun

Framkvæmdir hófust í vikunni við gerð fyrsta vindorkuvers landsins. Búrfellslundur eða Vaðölduver verður á sautján ferkílómetra svæði í kringum Vaðöldu í Rangárþingi ytra.

<>

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun þar sem segir að fulltrúar sveitarfélagsins, Borgarverks, verkfræðistofunnar COWI og Landsvirkjunar hafi komið saman á verkstað í gær. Segir að á svæðinu sé jarðvegsvinna hafin, veglagning og undirbúningur fyrir uppsetningu vinnubúða.

Haft er eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, að það sé mikið fagnaðarefni að framkvæmdir séu hafnar við Búrfellslund.

„Við vitum öll að það er mikil þörf fyrir aukna endurnýjanlega orku til að mæta vexti samfélagsins og bæta raforkuöryggi. Þetta er heillaskref í sögu þjóðarinnar og gott að sjá hversu vel hefur verið vandað til verka hjá Landsvirkjun í þessu verkefni.“

Þá er haft eftir sveitarstjóra Rangárþings ytra, Jóni G. Valgeirssyni, að það hafi verið gaman að verða vitni að þessum merku tímamótum í Íslandssögunni. „Hér hjá okkur mun fyrsti hluti þessarar þriðju stoðar orkukerfisins rísa.“

Tímabært að hefjast handa
Í tilkynningunni segir að búið sé að velja vindmylluframleiðanda eftir útboð á fyrri hluta árs. „Verið er að ganga frá samningum og verður tilkynnt hvaða framleiðandi átti hagstæðasta tilboðið á næstu dögum. Vindmyllurnar verða reistar á árunum 2026 og 2027 og verður fyrri hluti vindorkuversins gangsettur haustið 2026.“

Þá er haft eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar, að hann fagni því að þetta mikla nýframkvæmdatímabil hjá fyrirtækinu sé hafið.

„Það er virkilega ánægjulegt að sjá hjólin vera farin að snúast hér á Þjórsár-Tungnaársvæðinu þar sem umfangsmiklar framkvæmdir verða næstu árin.

Það er ekki bara bygging vindorkuversins hér við Vaðöldu heldur er líka um að ræða byggingu Hvammsvirkjunar og stækkun Sigölduvirkjunar. Undirbúningur þessara verkefna hefur staðið áratugum saman og tímabært að hefjast handa,“ segir Hörður.

Heimild: Visir.is