Hásteinsvöllur – Endurnýjun aðalvallar, yfirborð og lagnir
Vestmannaeyjabær óskar eftir tilboðum í verkið Hásteinsvöllur – Endurnýjun aðalvallar, yfirborð og lagnir.
Útboðsverkið felst í jarðvinnu við frágang á yfirborði og lagnir í jörð vegna gervigrasvallar og svæða undir komandi vallarlýsingarmöstur.
Helstu magntölur eru:
- · Uppgröftur og brottakstur 2.800 m2
- · Fylling undir vallarsvæði 1.500 m2
- · Þjöppun núverandi fyllingar 9.700 m2
- · Jarðvinna vegna lagna 806 m
- · Fráveitulagnir 76 m
- · Vatnslagnir 810 m
- · Raflagnir 1.415 m
Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/ frá og með miðvikudeginum 22. október 2024 kl.14.:00
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en fimmtudaginn 7. nóvember kl. 14:00