Home Fréttir Í fréttum Bygging Kársnesskóla í Kópavogi komin hundruð milljóna fram yfir áætlanir – Mikill...

Bygging Kársnesskóla í Kópavogi komin hundruð milljóna fram yfir áætlanir – Mikill hönnunar og eftirlitskostnaður

53
0
Teikningar skólans. Mynd/Kópavogsbær

Bygging Kársnesskóla í Kópavogi hefur farið hundruð milljóna króna fram úr kostnaðaráætlunum. Enn þá er ekki vitað hver heildarkostnaðurinn verður.

<>

Þetta kemur fram í svörum bæjarins við fyrirspurnum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, bæjarfulltrúa Viðreisnar.

Theodóra spurði meðal annars um kostnað við eftirlit við byggingu skólans. Kostnaðarmatið var 100 milljónir króna og samið var við JT verk um það árið 2021. Samkvæmt svari bæjarins er kostnaðurinn við þennan þátt nú orðinn tæpar 239 milljónir króna, það er kominn 139 milljónum króna fram úr áætlun.

Einnig var spurt um hönnunarkostnað. Tilboðið var 99 en að lokum samið við Mannvit árið 2019 upp á rúmar 139 milljónir króna. Þessi kostnaður er hins vegar kominn í rúmlega 306 milljónir króna. Það er 167 milljónum króna fram úr áætlun.

Theodóra spurði einnig um heildarkostnað en hann liggur ekki fyrir. Í svari bæjarins segir að ástæður hækkunarinnar séu meðal annars verðbætur, að bærinn hafi tekið að sér hluta af hönnun og ráðgjöf, lagfæringar og aðlögun að göllum í framkvæmd, breytingar á teikningum og fleira.

Þá er gert ráð fyrir 44 milljón króna kostnaði vegna riftunar á samningi og máls fyrir gerðardómi. En bærinn rifti samningi við ítalska verktakafyrirtækið Rizzani de Eccher.

Eldri skóli var rifinn árið 2019 vegna myglu. Gert var ráð fyrir að bygging nýs skóla myndi kosta á fjórða milljarð króna í útboði árið 2021. Ítalska fyrirtækið átti lægsta boð, 3,2 milljarða.

Heimild: DV.is