Home Fréttir Í fréttum 28.06.2024 Borgaskóli 2024. Endurgerð lóðar – 2. áfangi

28.06.2024 Borgaskóli 2024. Endurgerð lóðar – 2. áfangi

107
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Borgaskóli 2024. Endurgerð lóðar – 2. áfangi, útboð nr. 16014

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið snýr að endurgerð á lóð Borgaskóla að Vættaborgum 9, 112 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á austurhluta skólalóðar en það svæði er alls u.þ.b 3400 m² að stærð.

Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Framkvæmdatími – verklok

Framkvæmdum skal vera að fullu lokið eigi síðar en 1.nóvember 2024. Verkinu telst ekki lokið af hálfu verktaka fyrr en hann hefur staðið að fullu við skuldbindingar sínar samkvæmt útboðsgögnum. Þá skal aðstaða verktaka hafa verið fjarlægð og vinnusvæðið hreinsað að fullu.

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 14:00 þann 4. júní 2024. 

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 28. júní 2024.