Home Fréttir Í fréttum 26.04.2024 Beðahreinsun á stofnanalóðum 2024

26.04.2024 Beðahreinsun á stofnanalóðum 2024

44
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Beðahreinsun á stofnanalóðum 2024, útboð nr. 15993

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Um er að ræða illgresis- og ruslahreinsun gróðurbeða (beðahreinsun) á stofnanalóðum, þ.e. gæsluvöllum, leikskóla- og skólalóðum.

Gróðurbeðunum eru skipt í tvo flokka, þ.e. gróðurbeð A og B. Gert er ráð fyrir tveimur hreinsunum á gróðurbeðum A en einni hreinsun á gróðurbeðum B.

• Gróðurbeð A = 45.285 m2

• Gróðurbeð B = 49.600 m2

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12:00 þann 9. apríl 2024.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 26. apríl 2024.