Home Fréttir Í fréttum 22.03.2024 Sundlaug Sauðárkróks – Raflagnir

22.03.2024 Sundlaug Sauðárkróks – Raflagnir

57
0
MYND: ÓAB

Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Sundlaug Sauðárkróks – Raflagnir.

<>

Í verkinu felst vinna við fullnaðarfrágang raflagna og stýrikerfa fyrir viðbyggingu við Sundlaug Sauðárkróks, en þar er um að ræða nýtt laugarsvæði sunnan núverandi sundlaugar, með barnalaug, busllaug, kennslulaug og lendingarlaug ásamt köldum potti.

Umhverfis laugarkörin er steypt tæknirými fyrir hreinsibúnað lauganna, jöfnunartanka, sandsíur og allan tæknibúnaðfyrir rekstur lauganna.

Stjórnbúnaður hreinsikerfa er hluti af þessu útboði, en verkkaupi leggur til hluta af sérhæfðum búnaði í kerfin. Uppsteypu mannvirkisins er lokið, búið að mála lagnakjallara og undirbúa flísalögn á laugarkörum.

Helstu magntölur:

Lagnaleiðir 500 m
Strengir 7.900 m
PLC kerfi 150 merki
Tengingar á búnaði 130 stk
Lampar 37 stk

 

Opnunardagur tilboða er 22. mars 2024. Verkinu í heild skal lokið 15. september 2024.
Útboðsgögn verða afhent gjaldfrjálst á rafrænu formi frá og með 7. mars 2024.

Óska skal eftir útboðsgögnum í tölvupósti á netfangið stod@stodehf.is.

Heimild: Skagafjordur.is