Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Undirritun samnings vegna byggingu á nýrri farþegamiðstöð á Skarfabakka

Undirritun samnings vegna byggingu á nýrri farþegamiðstöð á Skarfabakka

231
0
Mynd: Frá undirritun samnings, f.v. Gunnar Tryggvason hafnarstjóri Faxaflóahafna og Þóroddur Ottesen Arnarson forstjóri ÍAV

Samningur vegna byggingu á nýrri fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna á Skarfabakka var undirritaður í Hafnarhúsinu síðastliðinn föstudag.

<>

Eru það ÍAV og samstarfsaðilar, verkfræðistofan VSÓ og BROKKR STUDIO arkitektar, sem sjá um hönnun og byggingu miðstöðvarinnar.

Undirbúningur verks er þegar hafinn og verklegar framkvæmdir hefjast í marsmánuði. Áætlað er að farþegamiðstöðin verði fullkláruð fyrir vertíð skemmtiferðaskipa vorið 2026.

Farþegamiðstöðin mun gerbylta allri aðstöðu og þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa sem koma á Skarfabakka. Aðstöðunni er ætlað að þjóna farþegum skemmtiferðaskipa hvort sem þeir hefja eða ljúka sinni ferð á Íslandi sem og þeim sem eingöngu eru í dagsheimsókn.

Hönnun hússins gerir ráð fyrir að hægt sé að nýta það undir viðburði af ýmsu tagi á þeim tíma ársins þegar skemmtiferðaskip eru ekki á ferðinni til landsins.

Heimild: Faxafloahafnir.is