Home Fréttir Í fréttum 20.03.2024 Leikskólinn Asparlaut við Skólaveg 54 Reykjanesbæ

20.03.2024 Leikskólinn Asparlaut við Skólaveg 54 Reykjanesbæ

104
0

Reykjanesbær óskar eftir tilboðum í verkið Leikskólinn Asparlaut við Skólaveg 54 Reykjanesbæ

Verkefnið er að fullklára fokhelda nýbyggingu á leikskóla á einni hæð, Leikskólans Asparlaut við Skólavegur 54, Reykjanesb. Botnflötur hússins er 1151 m2.

<>

Leikskólinn er sex deilda, fyrir allt að 126 börn og 24 starfsmenn. Deildum er skipt upp í pör og er hvert par sér brunahólf, ásamt starfsmannarými og önnur þjónusturými

Þetta er almennt rafrænt útboð. Verktaki tekur við byggingu á bygginarstigi 2. Búið er að steypa húsið upp, setja glugga og hurðir í og þétta, slípa, grunna og leggja tvö lög af asfalt pappa á þakflöt og kanta og einangra og fylla að sökklum.

Nánari lýsing á ástandi hússins kemur fram í skilalýsingu verkkaupa og við vettvangsskoðun.

Lóðarframkvæmdir og endanleg girðing lóðar er ekki hluti af útboði þessu.

Útboðsyfirlit

  • Útboðsgögn tilbúin: föstudagur, 23. febrúar 2024 Kl. 14:00
  • Kynningarfundur á verkstað Skólaveg 54 Reykjanesbæ: fimmtudagur, 29. febrúar 2024 Kl. 14:00
  • Fyrirspurnartími lýkur:  mánudagur, 4. mars 2024 Kl. 14:00
  • Svartími fyrirspurna lýkur: föstudagur 8. mars 2024 kl. 12:00
  • Skil tilboða:   miðvikudagur, 20. mars 2024 Kl. 14:00
  • Opnunartími tilboða: miðvikudagur, 20. mars 2024 KI 14:02
  • Upphaf framkvæmdatíma:  Við undirskrift samnings
  • Tilboðstrygging tengd undirritun samnings
  • Tafabætur per virkan dag eftir lok framkvæmdatíma: 250.000 kr
  • Frávikstilboð: Ekki heimiluð
  • Verkið verðbætist samkvæmt byggingavísitölu á tilboðsdegi
  • Opnun tilboða verður á Teamsfund/Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ: miðvikudagur, 20. mars 2024 Kl. 14:02

Þeir sem senda inn tilboð fá fundarboð á Teamsfund eða geta verið viðstaddir opnun á Tjarnargötu 12.

Útboðsgögn verða tilbúin föstudaginn 23. febrúar. Þeir sem áhuga hafa á að bjóða í verkið, Leikskólinn Asparlaut við Skólaveg 54, geta fengið þau send með því að senda ósk þar um, á innkaupastjori@reykjanesbaer.is

Vinsamlega hafið nafn fyrirtækis sem gerir tilboðið, nafn á tengilið sem vinnur tilboðið ásamt símanúmeri og tölvupóstfangi í beiðni um útboðsgögn. Farið er fram á að verktaki hafi unnið sambæranlegt verkefni áður og því er óskað eftir lista yfir þau verkefni í sérstöku fylgiskjali.