Wow air óskaði í byrjun október. eftir lóð undir höfuðstöðvar félagsins sem hafa verið til húsa við Katrínartún í Reykjavík. Á hringtorginu þarskammt frá er skúlptúr eftir Rafael Barrios sem Skúli Mogensen, eigandi WOW air, lánaði Reykjavíkurborg.
Nýju höfuðstöðvarnar eiga að vera 9.000 fermetrar, nútímalegar og þar á að leggja áherslu á tengslin við sjávarsíðuna og náttúruna. Áætluð bílastæðaþörf er um 200 stæði, að því er fram kom í bréfi Skúla til Kópavogsbæjar í október á síðasta ári og visir.is greindi frá.
Mbl.is greindi svo frá því um miðjan þennan mánuð að fyrirtækið hefð einnig óskað eftir lóð á Kársnesi undir hótel. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, sagði í samtali við vefinn að málið væri á frumstigi en þetta væri spennandi hugmynd.
WOW air skilaði rúmlega milljarði í hagnað á síðasta ári.
Icelandair er einnig að stækka við sig. Flugfélagið óskaði í janúar eftir viðræðum við Reykjavíkurborg um úthlutun lóðar til að stækka höfuðstöðvar félagsins í Vatnsmýri.
Heimild: Rúv.is