Home Fréttir Í fréttum Mikil uppbygging framundan á Flúðum

Mikil uppbygging framundan á Flúðum

109
0
Jón Bjarnason oddviti og Torfi G. Yngvason forsvarsmaður Greenhouse spa handsala samkomulagið ásamt fulltrúum sveitarstjórnar þeim Bjarneyju Vignisdóttur, Daða Geir Samúelssyni og Alexöndru Jóhannesdóttur. Ljósmynd/Hrunamannahreppur

Samkomulag um uppbyggingu á vegum Greenhouse Spa á Flúðum var undirritað á milli fyrirtækisins og Hrunamannahrepps í liðinni viku en svæði fyrir ferðaþjónustutengda starfsemi hafði áður verið auglýst laust til úthlutunar.

<>

Með samkomulaginu er fyrirtækinu úthlutað svæði við Litlu Laxá, í miðbæ Flúða, til uppbyggingar fjölbreyttrar ferðaþjónustu. Á umræddu svæði var áður garðyrkjustöðin Laxárhlíð og hyggjast forsvarsmenn Greenhouse spa nýta sér þau gróðurhús sem eru á svæðinu í rekstrinum en öll hönnun miðar að því að gestir geti notið þess að heimsækja gróðurhús og átt í þeim afslappandi gæðastundir án tillits til veðurs.

Að sögn Torfa G. Yngvasonar, forsvarsmanns Greenhouse Spa, er ætlunin að þarna muni skapast ferðamannastaður sem nýtir þá miklu orku sem til staðar er í Hrunamannahreppi. Fjöldi gufubaða og heitra lauga mun einkenna staðinn sem nýta mun til fulls það fallega umhverfi sem er þarna allt um kring. Einnig er gert ráð fyrir veitingahúsi, ferðamannaverslun, beint frá býli verslun og önnur ferðatengd þjónusta.

Kynningarmynd af væntanlegu útliti ferðamannastaðarins við Litlu-Laxá. Mynd/Greenhouse Spa

Að sögn Torfa er unnið af kappi að hönnun mannvirkjanna og standa vonir til að fyrstu gestir geti notið þess að heimsækja Ylju, sem er vinnuheiti verkefnisins, sumarið 2025. Fyrirtækið hefur einnig fengið úthlutað lóð fyrir um 60 herbergja hótel á sama stað og mun uppbygging þessara tveggja verkefna fylgjast að.

Jón Bjarnason, oddviti Hrunamannahrepps, segist ánægður með að samkomulag hafi náðst um þetta verkefni og fagnar því að á reitnum öllum rísi eftirsóknarverð og aðlaðandi starfsemi sem styrkja mun Hrunamannahrepp og Flúðir sem eftirsóknarverðan áfangastað ferðamanna og ekki síður sem eftirsóknarverðan búsetukost til framtíðar.

Heimild: Sunnlenska.is