Home Fréttir Í fréttum Kalda­lón kaupir fast­eignir fyrir 8 milljarða

Kalda­lón kaupir fast­eignir fyrir 8 milljarða

148
0
Hafrannsóknarstofnun flutti starfsemi sína í nýtt húsnæði að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði árið 2020. Ljósmynd: Aðsend mynd

Kaldalón tilkynnir um nokkur fasteignaviðskipti að fjárhæð samtals 8 milljarðar króna, þar á meðal Fornubúðir 5 sem hýsir höfuðstöðvar Hafrannsóknarstofnunar.

<>

Fateignafélagið Kaldalón hefur að undanförnu ýmist fengið samþykkt kauptilboð eða undirritað samninga um kaup á sex fasteignum á höfuðborgarsvæðinu sem nema samtals um 17.000 fermetrum. Heildarkaupverð nemur 8 milljörðum króna.

Kaldalón kaupir 12.084 fermetra af fasteignum í Hafnarfirði og í Reykjavík. Auk þess kaupir félagið þrjár fasteignir í byggingu í Hafnarfirði sem eru 4.911 fermetrar að stærð og afhentar eru eftir framvindu næstu 12 mánuði. Þá fylgja viðskiptunum 2.559 fermetra byggingaréttur við Klettagarða í Reykjavík.

Aukinn rekstrarhagnaður félagsins er áætlaður um 566 milljónir króna á ársgrundvelli eftir afhendingu fasteignanna.

Greint er frá viðskiptunum í tilkynningu til Kauphallarinnar þar sem nálgast má upplýsingar um fjármögnun viðskiptanna.

„Í dag tilkynnum við um viðskipti um fasteignir upp á 17 þúsund fermetra. Við frágang og afhendingu fasteigna sem tilkynnt er í dag mun því stærð fasteignasafns Kaldalóns nema um 120 þúsund fermetrum,“ segir Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns.

„Það er ánægjulegt að taktur sé kominn í vöxt félagsins. Áherslur stjórnenda á seinni helmings síðasta árs fóru að stórum hluta í að skrá félagið á aðalmarkað kauphallar og móta framtíðar fjármögnunarramma félagsins. Við höfum náð mjög góðum tökum á rekstrinum og munum því halda áfram vexti félagsins innan þeirrar stefnu sem mörkuð hefur verið, þegar aðstæður á markaði eru okkur hagfelldar.“

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns.
© Eyþór Árnason

Kaupa hús Hafrannsóknarstofnunar
Kaldalón hefur fengið samþykkt kauptilboð í fasteignina Fornubúðir 5, Hafnarfirði. Heildarstærð fasteignar er 10.319 fermetrar og gerir kauptilboð ráð fyrir að fasteignin sé að fullu útleigð til tveggja aðila. Kaupverð fasteignar og tengdra lóðarréttinda er 4,7 milljarðar króna en byggingarréttur vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni er undanskilinn í viðskiptum.

Stærri hluti fasteignarinnar er með langtímaleigusamning við Hafrannsóknarstofnun til ársins 2044. Annar hluti húsnæðis inniheldur meðal annars vöruhúsnæði og fyrirtæki í fiskiðnaði.

Um er að ræða önnur viðskiptin með Fornubúðir 5 á innan við einu ári. Hið nýstofnaða F5 eignarhaldsfélag, sem er að stærstum hluta í eigu félags Þórðar Kolbeinssonar, keypti fasteignafélagið Fornubúðir fyrir 4,8 milljarða síðasta sumar en helsta eign þess keypta félagsins var húsnæðið að Fornubúðum 5 auk byggingarréttar á sömu lóð.

Vöru- og iðnaðarhúsnæði að Borgahellu
Kaldalón hefur jafnframt undirritað kaupsamning um þrjár fasteignir að Borgahellu, samtals um 4.911 fermetrar. Kaupverð fasteigna að Borgahellu er 1.773 milljónir króna, en helmingur kaupverðs er tengdur byggingarvísitölu og miðast við vísitölu í desember 2024.

Um er að ræða nýbyggingar og þróunareignir og er afhending til Kaldalóns áætluð í áföngum á fjórða ársfjórðung 2024 og fyrsta ársfjórðung 2025.

Fasteignirnar eru vöru- og iðnaðarhúsnæði en undirritaður hefur verið leigusamningur við N1 til ársins 2030 um Borgahellu 29. Ekki hafa verið undirritaðir leigusamningar um Borgahellu 31 og 33, en Kaldalón mun kynna eignirnar til leigu á næstu mánuðum.

Fasteignir að Klettagörðum og Lambhagavegi
Kaldalón hefur auk þess fengið samþykkt kauptilboð í fasteign að Klettagörðum 11, samtals 1.765 fermetrar, sem hýsir í dag þjónustufyrirtæki við stærri atvinnutæki. Auk fylgir 2.559 fermetra byggingarréttur með lóðinni. Kaupverð fasteignar og byggingarréttar er 950 milljónir króna.

Þá hefur Kaldalón undirritað kaupsamning um og fengið afhenta fasteignina Lambhagavegur 12. Um er að ræða 3.918 fermetra lóð þar sem framkvæmdir eru hafnar fyrir nýja þjónustustöð fyrir ökutæki sem mun meðal annars hafa að geyma þvottastöð og eldsneytis- og rafmagnssölu. Leigusamningur hefur verið undirritaður um alla fasteignina til tíu ára frá afhendingu við Orkuna.

Kaupverð lóðar og þeirra framkvæmda sem þegar er lokið á lóðinni að Lambhagavegi 12 er 163,8 milljónir króna en auk þess mun félagið fjárfesta fyrir 440 milljónir í framkvæmdum fram að afhendingu sem áætluð er á öðrum ársfjórðungi 2025.

Heimild: Vb.is