Vegagerðin, Umhverfisstofnun og 8 sveitarfélög í landinu, buðu út kortlagningu á umferðarhávaða skv. reglugerð 1000/2005 um kortlagningu á hávaða og gerð aðgerðaáætlana.
Kortlagning skal gerð með aðferðafræði CNOSSOS og skal gerð grein fyrir niðurstöðum kortlagningar í greinargerð.
Eftir lok tilboðsfrests, þriðjudaginn 9. janúar sl.,var bjóðendum tilkynnt um nöfn þátttakenda í útboðinu.
Þriðjudaginn 16. janúar voru verðtilboð hæfra bjóðenda opnuð. Báðir bjóðendur uppfylltu hæfisskilyrði útboðsins.
Valforsendur eru skv. matslíkani þar sem lagt er til grundvallar verðtilboð bjóðanda í verkhluta 1 reiknað til stiga og stigagjöf fyrir gæði.
Bjóðandi | Verðtilboð kr. |
Verðtilboð, stig |
Gæði, stig |
Samtals, stig |
Verkís hf., Reykjavík | 35.620.240 | 71 | 25 | 96 |
Efla hf., Reykjavík | 33.487.772 | 75 | 25 | 100 |
Áætlaður ráðgjafakostnaður | 31.644.800 |
Verðtilboð bjóðenda í verkhluta 2.
Verkís hf., Reykjavík | 9.614.960 |
Efla hf., Reykjavík | 7.577.896* |
* Við yfirferð verðtilboða kom í ljós villa í tilboðsskrá þannig að tilboðsupphæð Eflu í verkhluta 2 var ekki rétt færð inn á opnunardegi. Þetta hefur verið leiðrétt í töflunni hér að ofan.