Home Fréttir Í fréttum Vilja reisa gróðurhús við Vogshól á Fitjum

Vilja reisa gróðurhús við Vogshól á Fitjum

152
0
Gróðurhús munu brátt rísa á meðal gagnavera á Fitjum. Mynd: Vf.is

VSO fyrir hönd Algae Capital hefur verið óskað heimildar til að breyta deiliskipulagi við Vogshól, breyta afmörkun, stækka og sameina lóðir.

<>

Fyrir liggja lóðarumsóknir um umræddar lóðir en Vogshóll er á svæði þar sem gagnaver hafa risið nærri gamla Patterson-flugvellinum upp af Fitjum í Njarðvík.

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að unnin sé tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Sjónarhól og Vogshól í samvinnu við umhverfis- og framkvæmdasvið.

Í erindi fyrirtækisins segir: Algae Capital B.V. hefur óskað eftir heimild Reykjanesbæjar til að vinna að breytingum á deiliskipulagi fyrir Vogshól – Sjónarhól á kostnað fyrirtækisins.

Deiliskipulag fyrir Vogshól og Sjónarhól var staðfest í júní 2016. Algae Capital kynnti fyrir umhverfis- og skipulagsráði Reykjanesbæjar þann 1. september sl. áform sem fyrirtækið hefur til uppbyggingar við Vogshól.

Þörf er á að sameina eða heimila sameiningar lóða 2, 4, 6 og 8 við Vogshól. Sameining tekur til hluta eða allra lóðanna í samræmi við áfangaskiptingu uppbyggingar. Áform eru uppi um byggingu gróðurhúsa á lóðunum.

Heimild: Vf.is