Home Fréttir Í fréttum Garðabær. Skipulagstillögur um Arnarland eru í forkynningu

Garðabær. Skipulagstillögur um Arnarland eru í forkynningu

98
0

Frestur til að skila inn ábendingum vegna forkynningar á skipulagstillögum Arnarlands er framlengdur til mánudagsins 2. október 2023.

<>

Svæðið sem tillögurnar ná til afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Arnarnesvegi, Fífuhvammsvegi og bæjarmörkum við Kópavog.

Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt að vísa tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 og tillögu að deiliskipulagi til forkynningar í samræmi við 2.mgr. 30.gr. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Svæðið sem tillögurnar ná til afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Arnarnesvegi, Fífuhvammsvegi og bæjarmörkum við Kópavog.

Tillagan gerir ráð fyrir því að reit fyrir verslun og þjónustu, 3.37 Vþ, í gildandi Aðalskipulagi Garðabæjar verði breytt í miðsvæði (M). Á svæðinu er gert ráð fyrir þéttri blandaðri byggð, með áherslu á heilsutengda starfsemi og uppbyggingu íbúðabyggðar m.a. í samræmi við markmið um uppbyggingu á samgöngu og þróunarás.

Hámarkshæð verður almennt 3-6 hæðir en kennileitisbygging næst Hafnarfjarðarvegi geti orðið allt að 9 hæðir. Aðkoma verður frá Fífuhvammsvegi og um göng undir Arnarnesveg frá Akrabraut. Gert er ráð fyrir því að Borgarlína sem fylgir Hafnarfjarðarvegi liggi um svæðið.

Frestur til að skila inn ábendingum framlengdur

Kynningarfundir um tillögurnar sem eru á vinnslustigi voru haldnir 31. ágúst og 20. september sl.  Frestur til að skila inn ábendingum vegna forkynningar á skipulagstillögum Arnarlands er framlengdur til mánudagsins 2. október 2023.

Hér á vef Garðabæjar má sjá gögn sem fylgja tillögunum og tillögurnar eru einnig aðgengilegar á vef skipulagsgáttar.

Heimild: Gardabaer.is