Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir hafnar hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum

Framkvæmdir hafnar hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum

240
0

Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. samþykkti á síðasta fundi sínum að hefja framkvæmdir við uppbyggingu nýs uppsjávarfrystihúss, mjöl,- og frystigeymslu ásamt tveimur hráefnistönkum.

<>

Byggingarfélagið Eykt hf. mun sjá um byggingarframkvæmdir og er fyrsta verkið hafið, bygging uppsjávarfrystihússins.  Fyrsti hluti verksins er niðurrif gamallar bræðsluþróar og eru framkvæmdir hafnar en þar mun síðar rísa mótorhús sem þjóna mun uppsjávarfrystihúsinu.

Heimild: Eyjar.net