Vegagerðin óskar eftir tilboðum í festun burðarlags með sementi, útlögn burðarlags og tvöfalda klæðingu á vegum á Norðursvæði 2023.
Áætlaðar magntölur:
- Festun með sementi 59.450 m2
- Tvöföld klæðing 59.450 m2
- Efra burðarlag afrétting 2.972 m3
Verklok eru 1. september 2023.
Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 17 apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. maí 2023
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsfjárhæðir.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign