Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Laugavegur Varmahlíð – Gatnagerð 2023.
Verkið felst m.a. í endurgerð fráveitulagna, fjarskiptalagna, vatnsveitu og hitaveitu í götunni, auk jarðvegsskipta í hluta götunnar, með malbikun akbrautar og gangstétta og gerð kantsteina.
Helstu magntölur:
- Skurðgröftur, fráveita: 430 m
- Fráveitulagnir, plast: 820 m
- Skurðgröftur, aðrar veitur: 450 m
- Vatnsveitulagnir: 514 m
- Hitaveitulagnir: 348 m
- Ljósastauralagnir: 380 m
- Gröftur og brottflutningur: 2500 m3
- Fyllingar: 800 m3
- Jöfnunarlag: 365 m3
- Malbik: 735 m2
- Kantsteinar: 785 m
Opnunardagur tilboða er 21. apríl 2023.
Verkinu í heild skal lokið 15. október 2023.
Útboðsgögn verða afhent gjaldfrjálst á rafrænu formi frá og með 3. apríl 2023. Óska skal eftir útboðsgögnum í tölvupósti á netfangið atli@stodehf.is