F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, Veitna, Mílu og Ljósleiðarans er óskað eftir tilboðum í verkið:
Ártúnshöfði – Svæði 1. Gatnagerð og lagnir, EES útboð nr. 15797
Verkið innifelur uppbyggingu gatna og veitna fyrir nýtt íbúða- og verslunarhverfi í Reykjavík. Heildarlengd gatna er um 1.900 m.
Verkið felst í nýbyggingu gatna, bílastæða, stíga og gangstétta auk malbikunar á neðra malbikslagi gatna. Einnig innifelur verkið alla vinnu við lagnir veitufyrirtækja í verkinu.
Verkið nær til allrar jarðvinnu fyrir götur, gangstéttar, bílastæði, fráveitur og frárennsliskerfi. Einnig felur það í sér alla vinnu, bæði jarðvinnu og lagnir, við heitt og kalt vatn, fjarskipta- og rafmagnslagnir ásamt götulýsingu.
Lokaskiladagur verksins er 15. maí 2025.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00, þriðjudaginn 4. apríl 2023.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 9. maí 2023.