Veitur ohf. óska eftir þátttakendum í rammasamning: “Þjónusta verktaka við yfirborðsfrágang”.
Í rammasamningsútboði þessu er leitað tilboða í vinnu við yfirborðsfrágang vegna viðhalds og/eða eftir framkvæmdir Veitna.
Verkin fela m.a. í sér vinnu við að ganga frá yfirborði; hellulögn, steyptar stéttar, malbikun, þökulagning, sáning, plöntun ofl. í samræmi við beiðni verkkaupa hverju sinni.
Rammasamningnum er skipt í eftirfarandi hluta og er bjóðendum heimilt að bjóða í báða eða staka hluta:
- Hluti 1 – Hellur og steypa o.fl.
- Hluti 2 – Malbik
Um er að ræða yfirborðsfrágang á öllu höfuðborgarsvæðinu; Reykjavík, Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarness.
Útboðsgögn afhent: | 27.03.2023 kl. 14:00 |
Skilafrestur | 27.04.2023 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 27.04.2023 kl. 14:00 |